Forsíða   |   Hótel   |   Aðstaða   |   Útivist   |   Hestar   |   Heklusetur   |   Lærdómssetur   |   Fjallaland   |    Sagan
   


Þú ert hér > Leirubakki > Fréttir

English  Deutsch

Af spjöldum sögunnar

Þjóðsögur af Leirubakkadraugnum

Álfaþúfa

Sögu- og menningarganga 2007

Sögu- og menningarganga 2006

Landréttir í Réttarnesi

Tenglar

 

Fréttir


20.7.2010 16:17:00
Tjaldstæðið opið!

 
Mikið hefur verið að gera á fjölskyldutjaldsvæðinu á Leirubakka í blíðviðrinu í sumar, og hafa gestir bæði verið Íslendingar og fólk frá öllum heimshornum. Leirubakki er frábærlega staðsettur til að gera að miðpunkti ferðalags um Suðurland; stutt til allra helstu sögustaða og náttúruperla í landshlutanum. – Og svo er heldur ekki amalegt að halda kyrru fyrir á Leirubakka í nokkra daga...........

Meira >>  
 

6.5.2010 13:31:31
Vorið er komið

Mikið fuglalíf er á Leirubakka og nágrenni

 
Mikið fuglalíf er að öllu jöfnu á Leirubakka og næsta nágrenni. Á vorin er sérstaklega mikið um að vera þegar farfuglarnir eru að koma til landsins og gera nokkurra daga stans í friðsældinni á Leirubakka. Hér til hægri má sjá Helsingja sem er frekar fágætur hér á landi. Smellið á meira til að sjá fleiri myndir frá Leirubakka.

Meira >>  
 

19.4.2010 09:48:53
Nýja eldgosið sést frá Leirubakka

Gosið á Fimmvörðuhálsi hætti og nýtt tók við í toppi Eyjafjallajökuls

 
Eldgosið í Eyjafjallajökli sem hófst þann 14. apríl sl., sést vel frá Leirubakka eins og þessi mynd ber með sér, þar sem gosmökkinn leggur um 6 km upp í loftið í heiðríkjunni. Gosstöðvarnar eru í um 40 km fjarlægð frá Leirubakka, og hefur vindáttin borið öskuna í suður og austur, þannig að ekkert öskufall hefur orðið hér um slóðir.

Meira >>  
 

25.3.2010 10:46:13
Gosið heldur áfram

 
Eldgosið á Fimmvörðuhálsi heldur áfram að mestu óbreytt í stórum dráttum. Þó eru að koma gufusprengingar öðru hvoru sem stafa aðallega af hraunrennslinu sem steypist í fossi niður í Hrunagil, sem er skammt frá gígaröðinni sjálfri.

Meira >>  
 

22.3.2010 16:56:09
Gosið á Fimmvörðuhálsi

 
Hér á Leirubakka er ekki hægt að segja að gosóróinn á suðurströndinni hafi haft mikil áhrif, amk. ekki enn þá. Þó sjást bólstrarnir frá gosinu þegar best lætur, þó ekki séu gígarnir sjálfir í sjónmáli. Frá Eyjafjallajökli að Leirubakka eru..........

Meira >>  
 

11.2.2010 12:03:11
Fyrirtækja-, óvissu- og skemmtiferðir!

Gerum tilboð fyrir hvers kyns hópa, svo sem fyrirtækjaferðir, skemmtiferðir, óvissuferðir, árshátíðir.

 
Á Hótel Leirubakka og í Heklusetrinu á Leirubakka er frábær aðstaða til að taka á móti stórum og smáum hópum, hvort heldur sem er í skemmtiferðir eða vinnuferðir. Góð fundaaðstaða í nokkrum sölum, nýtt píanó til að nota við kóraæfingar og veitingahús í fremstu röð. Gerum hópum tilboð........

Meira >>  
 

15.1.2010 15:53:16
Óvænt heimsókn!

 
Þessi myndarlega brandugla kom í óvænta heimsókn að Leirubakka á jóladag. Hún hafði komið sér inn í fjárhús á bænum, en fann ekki leiðina út hjálparlaust. Hún var feit og pattaraleg, enda vafalaust mikið um æti núna í öllum músaganginum sem fréttir hafa verið af á Suðurlandi í blíðviðrinu í haust og vetur. Branduglur verpa á hverju sumri í landi Leirubakka, aðallega á hrauninu sunnan við bæinn, þar sem þær sjást oft á flugi, einkum í ljósaskiptunum síðla sumars og á haustin. Á myndinni eru þau bændur á Leirubakka, Anders Hansen og Valgerður Brynjólfsdóttir, með ugluna áður en henni var gefið frelsi.

Meira >>  
 

5.10.2009 15:49:56
Máninn glatt á himni brosir

 
Oft er mikil veðurblíða sem fylgir þegar fer að hausta og kólna í veðri. Loftið er tærara en á sumrin og birtuskilyrðin geta orðið einkar dulúðug og töfrandi, ekki síst þegar sól lækkar á lofti og tunglið fer að láta sjá sig.

Meira >>  
 

30.9.2009 11:23:44
Hamarinn í sjónvarpið

 
Fyrsti þáttur af sjónvarpsþáttaröðinni Hamarinn verður sýndur á RÚV sunnudaginn 4, október nk. Hluti af þessum þáttum var tekinn upp á Leirubakka haustið 2008 og var mikið um að vera meðan á upptökum stóð. Á myndinni er leikstjórinn Reynir Lyngdal mjög einbeittur að fylgjast með upptökum á hótelganginum á Leirubakka.

Meira >>  
 

17.9.2009 14:49:04
Stærðfræði á Íslandi 2009

Ráðstefna á Leirubakka

 
Fimmta ráðstefna Íslenska stærðfræðafélagsins undir yfirskriftinni Stærðfræði á Íslandi er haldin á Leirubakka helgina 18. til 20. september 2009.

Meira >>  
 


<<Fyrri      Næsta>>


 Til baka

© Leirubakki | leirubakki@leirubakki.is | bookings@leirubakki.is
Sími/Tel. +354 487 8700 | GSM/Mobile: +354 893 5046| Fax: +354 487 6692