|

 Hrossarækt - tamning, þjálfun, sala, sýningar og hestaleiga. Sími: 893 5046 leirubakki@leirubakki.is www.leirubakki.is
|

|
Hestafréttir
15.6.2010 21:28:10
|
Stóðhestar á Leirubakka sumarið 2010
|
|
 |
| Margir athyglisverðir stóðhestar verða notaðir á hryssur Leirubakkabúsins sumarið 2010, bæði heimahestar og aðrir hestar. Heimahestarnir eru tveir að þessu sinni, þeir Askur frá Leirubakka og bleikstjörnótti Keilissonurinn Kyndill frá Leirubakka. Báðir voru þeir notaðir lítillega sumarið 2009, en Kyndill var þó leigður út. Folöldin undan þeim lofa mjög góðu. Í sumar verður hryssum búsins einkum haldið undir þessa hesta, auk þeirra Asks og Kyndils sem fyrr eru nefndir: Möller frá Blesastöðum, Glym frá Skeljabrekku, Eldjárn frá Tjaldhólum, Stála frá Kjarri, Aron frá Strandarhöfði, Kiljan frá Steinnesi, Glym frá Flekkudal og Ágústínus frá Melaleiti. Allir eru þessir hestar með háa dóma í kynbótadómi og flestir í röð kunnustu graðhesta landsins um þessar mundir.
Myndin er af einum þeirra hesta sem Leirubakkahryssunum verður haldið undir; Stála frá Kjarri. Knapi er Daníel Jónsson.
Sjá nánar um stóðhesta á Leirubakka undir kaflanum Stóðhestar 2010 hér til hliðar.
|
Meira >> |
| |
 |
7.6.2010 16:35:03
|
Þrjú folöld fædd
|
|
 |
| Nú eru hryssurnar á Leirubakka að kasta hver af annarri og eru þegar komin þrjú merfolöld, undan hryssunum Brún, Bryggju og Emblu. Feður folaldanna eru ekki síður athyglisverðir, enda allir meðal hæst dæmdu stóðhesta landsins, en þeir eru Hnokki frá Fellskoti, sem nú hefur verið seldur til Danmerkur, og svo þeir Stáli frá Kjarri og Kvistur frá Skagaströnd.
Á myndunum má sjá folöldin þrjú , en sú brúna undan Bryggju og Stála heitir Aska frá Leirubakka, svo er bleikstjörnótt undan Hnokka og Emblu, hún heitir Gjóska en sú rauðskjótta..... |
Meira >> |
| |
 |
18.1.2010 13:31:15
|
Stóðhesturinn Seifur í þjálfun
|
|
 |
| Tamningar og þjálfun eru í fullum gangi á Leirubakka nú sem endranær. Fyrri hluta vetrar hefur verið unnið að frumtamningu nokkurra tryppa sem fædd eru á Leirubakka vorin 2005 og 2006 undan hryssum búsins og stóðhestunum Asa frá Kálfholti, Keili frá Miðsitju, Huga frá Hafsteinsstöðum, Adam frá Ásmundarstöðum og fleiri hestum. |
Meira >> |
| |
 |
15.10.2009 21:04:25
|
Vetrarstarfið undirbúið á Leirubakka
Vonir eru bundnar við tvær dætur Emblu |
|
 |
| Vetrarstarfið í hesthúsinu á Leirubakka er að komast á fullan skrið, og í dag vorum við að fara yfir hrossin, járna á skaflaskeifur og gera klárt fyrir þjálfun næstu vikna. Hrossin sem núna er verið að......... |
Meira >> |
| |
 |
8.10.2009 15:46:50
|
Stóðhestar á Leirubakka sumarið 2009
|
|
 |
| Margir stóðhestar voru notaðir á hryssur Leirubakkabúsins sumarið 2009 eins og venjulega og voru þetta í bland ungir og efnilegir folar og þekktir fyrstu verðlauna stóðhestar. Meðal ungfolanna má nefna þá Kyndil frá Leirubakka, Vökul frá Árbæ og Ask frá Leirubakka, en meðal hinna......... |
Meira >> |
| |
 |
6.10.2009 11:57:48
|
Ný hross í tamningu
|
|
 |
| Hauststörfin í hesthúsinu á Leirubakka eru hafin og nú er verið að byrja á tamningu nokkurra unghrossa sem miklar vonir eru bundnar við. Þar á meðal eru til dæmis stóðhestarnir......... |
Meira >> |
| |
 |
17.9.2009 14:24:34
|
Hrannar frá Leirubakka
|
|
 |
| Þessa dagana er verið að gefa tryppum og fleiri hrossum á Leirubakka ormalyf um leið og þau eru flutt í hausthaga þar til farið verður að gefa þeim út er vetur leggst að. Einn ungfolanna sem vakti nokkra athygli í haust er aðeins veturgamall; Hrannar frá Leirubakka, brúnn að lit undan Syllu og Væringja frá Árbakka, sem bæði hafa verið seld úr landi; Sylla til Danmerkur en Væringi til Þýskalands. Nafnið fær......... |
Meira >> |
| |
 |
13.9.2009 21:30:28
|
Hryssur heim frá stóðhestum
|
|
 |
| Ræktunarhryssurnar á Leirubakka eru nú flestar komnar heim úr stóðhestahólfum, en auk heimahestanna Asks og Kyndils frá Leirubakka var t.d. haldið undir ........ |
Meira >> |
| |
 |
9.9.2009 20:10:27
|
Heyskapur á Leirubakka
|
|
 |
| Sumarið 2009 er örugglega eitt besta sumar á Leirubakka í langan tíma; þurrt, sólríkt og hlýtt. Sól og blíða svo vikum skipti. |
Meira >> |
| |
 |
2.8.2009 17:24:27
|
Askur með hryssur á Leirubakka
|
|
 |
| Ungfolinn Askur frá Leirubakka er í sumar með hryssur í haga við Vatnagarðslæk á Leirubakka. Askur er móbrúnn á lit, undan hinum kunna stóðhesti Aroni frá Strandarhöfði og Kolkuósshryssunni Grýlu frá Árbakka. |
Meira >> |
| |
 |
<<Fyrri Næsta>>
|
| Til baka
|